Guðrún Eva - Íslensku bókmenntaverðlaunin

Til hamingju, Guðrún Eva!

Í gær voru Íslensku bókmenntaverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Guðrún Eva Mínervudóttir hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir skáldsöguna Allt með kossi vekur sem kom út fyrir jólin.

Þriggja manna lokadómnefnd, skipuð þeim Þorgerði Jennýjardóttur Einarsdóttir, Árna Matthíassyni og Þorsteini Gunnarssyni, valdi verkin úr hópi tíu bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember síðastliðnum, fimm í flokki fagurbókmennta og fimm í flokki fræðirita og bóka almenns efnis.

Allt með kossi vekur er sjötta skáldsaga Guðrúnar Evu. Þetta er kraftmikil og hugmyndarík saga sem sver sig í ætt við fyrri bækur skáldsins, þar sem frásögnin dansar á mörkum raunsæis og fantasíu. Bókin hefur fengið gríðarlega góða dóma þar sem meðal annars talað er um bókina sem „seiðmagnað skáldverk“ og sagt að Guðrún Eva sé „einn okkar frjóasti og frumlegasti höfundur [fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“][sem hafi] einstakt lag á því að sýna samskipti fólks í nýju og óvæntu ljósi.“

Þessa dagana er bókin á 50% afslætti á Netmarkaði Forlagsins þannig að þeir sem ekki eiga verðlaunabókina geta nælt sér í hana á verðlaunaverði.



[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]

INNskráning

Nýskráning