Guðni Kolbeinsson og fleiri

Til hamingju, Guðni!

Guðni Kolbeinsson tók í gær á móti Barnabókaverðlaunum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar fyrir þýðingu sína á bókinni Stiklað á stóru um býsna margt eftir Bill Bryson. Um er að ræða stytta útgáfu á metsölubók Brysons Stiklað á stóru um næstum allt, ríkulega myndskreytta bók fyrir börn og aðra forvitna um allt milli himins og jarðar. Þótti dómnefnd verðlaunanna Guðni hafa skilað verki Brysons á gott og vandað mál sem aðgengilegt væri ungum lesendum.

Guðni Kolbeinsson er mikilvirkur þýðandi og hefur tvívegis áður fengið verðlaun reykvískra skólayfirvalda fyrir þýðingar sínar, fyrir Ararat árið 2005 og Ógnaröfl árið 2000. Þá hlaut hann sömu verðlaun fyrir sögu sína Mömmustrákur sem kom út árið 1983.

Barnabókaverðlaun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur hafa verið veitt sleitulaust frá árinu 1973 og eru elstu bókmenntaverðlaun landsins. Í ár hlaut Anna Heiða Pálsdóttir verðlaunin fyrir frumsömdu barnabókina Mitt eigið harmagedón og á myndini eru verðlaunahafarnir ásamt Oddnýju Sturludóttur, formanni skóla- og fræðsluráðs Reykjavíkur, Jóni Gnarr borgarstjóra og Margréti Kristínu Blöndal, formanni dómnefndar.

INNskráning

Nýskráning