Andri Snær Magnason hlaut í dag Vestnorrænu barna- og unglingabókaverðlaunin fyrir bók sína Tímakistuna. Þetta var í sjöunda sinn sem verðlaunin voru veitt og atti Tímakistan kappi við Flata Kaninin (Flata kanínan) eftir Bárð Oskarsson frá Færeyjum og Nasaq Teqqialik (Töfrakaskeitið) eftir Kathrine Rosing frá Grænlandi. Tilgangur Vestnorrænu barnabókaverðlaunanna er að benda á mikilvægi góðra barnabóka á smáum málsvæðum og eru þau veitt annað hvert ár.
Andri er fyrsti höfundurinn til að hreppa verðlaunin í tvígang, en hann hlaut verðlaunin í fyrsta skiptið sem þau voru veitt fyrir Söguna af bláa hnettinum. Verðlaunaafhendingin fór fram í Alþingishúsinu í dag en hún er haldin í tengslum við ársfund Vestnorræna ráðsins.
Við óskum Andra innilega til hamingju!