Íslensku bókmenntaverðlaunin 2013

Til hamingju Andri Snær og Sjón!

Bækur Andra Snæs og Sjóns, Mánasteinn og Tímakistan, hlutu á fimmtudaginn íslensku bókmenntaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Sjón hlaut verðlaun í flokki fagurbókmennta en Mánasteinn hefur hlotið frábæra dóma og notið mikilla vinsælda síðan hún kom út fyrir jólin. Um hana hafa gagnrýnendur m.a. sagt: „Meistaralega fléttuð saga með ógleymanlegum myndum, mögnuðum stíl og einstakri söguhetju. Lestrarupplifun ársins.“ FB / Fréttablaðið.

Andri Snær hlaut verðlaun í nýjum flokki barna- og unglingabóka og varð þar með fyrstur allra til að hljóta verðlaun í öllum þremur flokkum Íslensku bókmenntaverðlaunanna (1999 fyrir Söguna af bláa hnettinum í flokki fagurbókmennta og 2006 fyrir Draumalandið í flokki fræðilegs efnis). Um Tímakistuna hafa gagnrýnendur m.a. sagt: „Hér sannast enn og aftur að Andri Snær er einn af okkar allra snjöllustu sögumönnum.“ ALÞ / Morgunblaðið.

Við óskum Andra Snæ og Sjón hjartanlega til hamingju með verðlaunin auk þess að við óskum Guðbjörgu Kristjánsdóttur til hamingju með verðlaun í flokki fræðilegs efnis fyrir Íslensku teiknibókina.


INNskráning

Nýskráning