Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir

Til hamingju Þórunn!

Um helgina hlaut Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir hin afar eftirsóttu Fjöruverðlaun í flokki fagurbókmennta fyrir stórvirki sitt Stúlka með maga – skáldættarsaga.

Fjöruverðlaunin voru fyrst veitt árið 2007 og eiga uppruna sinn í bókmenntahátíð sem haldin var að frumkvæði hóps kvenna innan Rithöfundasambandsins en verðlaunin hafa verið veitt árlega síðan þá.

Í umsögn dómnefndar um Stúlku með maga segir:

„Í þessari skáldættarsögu leiðir Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir lesendur aftur í tímann og segir af ættingjum sínum og fólki sem þeim tengist. Hún skrifar í orðastað móður sinnar, sem sér lengra en nef hennar nær, bæði fram í tímann og aftur í aldir. Rödd sögukonunnar er sterk og frumleg, eins og sagan sjálf, hæðin þegar það á við, en líka elsku- og huggunarrík.

Stúlka með maga er nýstárleg bók, þar sem höfundur miðlar bæði sagnfræði og skáldskap á afar persónulegan máta. Um leið og við lesum sögur af lífsbaráttu ættingja Þórunnar, ástum þeirra og örlögum, fáum við einnig góða innsýn í sögu þjóðarinnar.

Það er mikill stráksskapur í textanum og stíllinn er fagur og töfrum slunginn. Höfundurinn fjallar um ætt sína af skilningi og ást þess sem veit að hjörtum mannanna svipar saman. Enginn fer í gegnum lífið án þess að upplifa sitthvað fallegt og gott – og, eins og segir í Stúlku með maga: „Enginn sleppur við angist og sviða“. Þórunn sýnir að þótt hverri manneskju sé ef til vill afmörkuð stund, þá geta pappírar úr járnskápum afkomendanna reynst afar notadrjúgir okkur hinum.“

Forlagið óskar Þórunni innilega til hamingju með verðlaunin og gaman er að segja frá því að Stúlka með maga er einmitt væntanleg í kilju á næstu vikum.

Aðrir vinningshafar voru Lani Yamamoto fyrir Stínu stórusæng og Guðný Hallgrímsdóttir fyrir Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur – Einsögurannsókn á ævi 18. aldar vinnukonu og óskum við þeim sömuleiðis báðum til hamingju með verðlaunin.

INNskráning

Nýskráning