Til hamingju Þórdís!

Í tilefni af alþjóðlegu 16 daga átaki sem nú stendur yfir gegn kynbundnu ofbeldi er sýning á myndum úr bók Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, Á mannamáli,  í verslunarmiðstöðinni Smáralind í Kópavogi.  Bók Þórdísar, sem varpar á einstakan hátt ljósi á stöðu ofbeldismála hérlendis, hefur verið afar vel tekið og hlotið hreint frábærar viðtökur.  Þórdís hlaut í vikunni jafnréttisviðurkenningu Stígamóta fyrir starf sitt en í rökstuðningi dómnefndarinnar segir m.a.:

„Fátt er mikilvægara í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi en upplýst umræða. Bókin „Á mannamáli“  er skrifuð í vönduðum rannsóknarblaðamennskustíl. Höfundur viðaði að sér yfirgripsmikilli þekkingu á kynferðisbrotamálum, leitaði fanga á ótal stöðum og dró rökréttar ályktanir. Bókin er mikilsverð tilraun til þess að eyða fordómum og fáfræði. Hún ætti að vera aðhald fyrir stjórnvöld og leiðarljós fyrir okkur hin.“

Við óskum Þórdísi innilega til hamingju með viðurkenninguna og hvetjum fólk til þess að kynna sér bókina, sýninguna og átakið sem stendur yfir til 10. desember.  Nánar má fræðast um átakið hér.

INNskráning

Nýskráning