Fjölmargir erlendir fjölmiðlar á Norðurlöndum, Frakklandi, Spáni og Ítalíu hafa að undanförnu minnst Thors Vilhjálmssonar rithöfundar með eftirsjá og virðingu, en Thor féll frá þann 2.mars s.l.. Flestir rifja þeir upp störf Thors í þágu menningar á Íslandi, erlendar bókmenntaþýðingar hans og áhrif á strauma og stefnur í íslenskum bókmenntum.
Franski þýðandinn Régis Boyer líkir Thor við stafnbúa í Íslendingasögunum og telur hann hafa gert meira fyrir útbreiðslu íslenskrar menningar, bókmennta og lista, en nokkur annar núlifandi höfundur. Hann, umfram alla, hafi orðið þess valdandi að rödd Ísland heyrðist í samhljómi evrópsks nútíma.
Minningargrein í spænska blaðinu El País kallar Thor Vilhjálmsson „risa í íslenskum bókmenntum“ og segir að með honum hafi horfið á braut einn mesti rithöfundur Íslendinga allra tíma og mikilmenni evrópskra bókmennta.
Corriere della sera og fjölmargir ítalskir fjölmiðlar kveðja skáldið og minnast um leið þýðinga hans á ítölskum bókmenntum og vináttu hans við ýmsa fyrirmenn í ítölsku menningarlífi, eins og Pasolini og Fellini, en sá fyrrnefndi bauð Thor hlutverk Krists í myndinni „Guðspjallið samkvæmt Mattheusi“. Í Mondo Editoriale er Thor nefndur „mestur íslenskra samtímahöfunda“, en í greininni segir m.a.: „Thor Vilhjálmsson er einn af fyrstu íslensku rithöfundunum á tuttugustu öld til að fjarlægjast hvers kyns raunsæi í lýsingum á mannlegum aðstæðum og málefnum og horfa þess í stað til frjálslegs frásagnarmáta og hugmyndaauðgi evrópsku skáldsögunnar (Joyce) og þeirrar amerísku (Faulkner). Þannig losnaði hann úr fjötrum átthaganna og forðaðist að líkja eftir verkum Halldórs Laxness, föður hinnar íslensku skáldsögu samtímans“.