Kristof Magnusson

„Ískrandi skemmtileg“

Bókin Það var ekki ég eftir Kristof Magnusson kom nýlega út á íslensku en höfundur er íslensk-þýskur höfundur og þýðandi. Bókin fjallar um þrjár aðalpersónur sem ekki þekkjast í byrjun en leiðir þeirra og líf fléttast saman í gegnum „ótrúlega snjalla og skemmtilega fléttu sem kemur lesanda hvað eftir annað til að skella upp úr“ eins og segir í dómi Friðriku Benónýsdóttur í Fréttablaðinu.

Í dómnum segir Friðrika ennfremur að Kristof sé „svo slyngur sögumaður að lesandinn kaupir plottið frá fyrstu síðu og hrífst með í hringiðunni.“

Friðrika er einnig hrifin af stíl Kristofs og segir hann leikandi léttan og ísmeygilegan og að textinn renni eins og rjómi í sérlega lipurlegri þýðingu Bjarna Jónssonar. Að lokum kemst Friðrika að eftirfarandi niðustöðu:„Ískrandi skemmtileg og listilega stíluð saga með vel skrifuðum persónum og fléttu sem ætti að höfða sérstaklega til Íslendinga.“

Alveg stórkostlega flottur dómur enda er hér vandaður og stórskemmtilegur höfundur á ferðinni.

INNskráning

Nýskráning