í tilefni af útkomu sjálfsævisögu Svavars Gestssonar, Hreint út sagt, verður haldinn opinn fundur miðvikudaginn 21. nóvember n.k. kl. 12:00-13:15 í Lögbergi stofu 101 Háskóla Íslands. Svavar ræðir bók sína við Guðna Th. Jóhannesson sagnfræðing og Stefaníu Óskarsdóttur stjórnmálafræðing auk þess sem vænst er þátttöku fundargesta í umræðum.
Í bókinni má m.a. lesa um átök um leiðir og ágreining um stíla innan Alþýðubandalagsins, auk þess sem hugmyndafræðileg þróun á vinstri væng stjórnmálanna á þessu tímabili í íslenskri stjórnmálasögu er til umfjöllunar. Um hvað var deilt og af hverju? Af hverju mistókst að sameina vinstri menn í einum stjórnmálaflokki? Í hvaða flokki slær hjarta Svavars nú?
Um þetta og fleira verður rætt. Allir velkomnir.