Þjóðminjasafn Íslands opnaði nýverið sýninguna Ása Wright – frá Íslandi til Trinidad. Á sýningunni getur að líta hluta þeirra gripa sem Ása Guðmundsdóttir Wright gaf safninu á 7. áratug síðustu aldar. Margir gripanna hafa ekki verið sýndir áður.
Inga Dóra Björnsdóttir hefur ritað ævisögu Ásu Wright en í bókinni Kona þriggja eyja rekur hún sögu þessarar merku konu sem ekki batt bagga sína sömu hnútum og samferðamenn og sat ekki alltaf á friðarstóli.