Nanna Rögnvaldardóttir

Sýning á matreiðslubókum Nönnu á Friðriki V

Um helgina verður opnuð sýning á öllum 15 matreiðslubókum eins okkar helsta matgæðings, Nönnu Rögnvaldardóttur, á veitingastaðnum Friðriki V við Laugaveg.

Um árabil hefur Nanna skipað sér í flokk einna færustu kokka landsins, matreiðslubækur hennar verið gífurlega vinsælar bæði hér heima sem og utan landssteinanna og hún unnið til verðlauna fyrir bækur sínar.

Boðið verður upp á léttar veitingar og hanastél á Friðriki V en opnunin fer fram laugardaginn 8. febrúar milli kl. 14-16.

Allir velkomnir!


INNskráning

Nýskráning