Svörtuloft eftir Arnald Indriðason kemur út 1. nóvember. Svörtuloft er þrettánda skáldsaga Arnalds Indriðasonar og segir enn af lögregluteyminu á Hverfisgötu.
Kona sem sökuð er um fjárkúgun er barin til ólífis nánast fyrir augum lögreglunnar. Árásarmaðurinn kemst undan á hlaupum og allt bendir til þess að þar sé handrukkari á ferð. Rannsókn málsins fellur í óvæntan farveg en meðan á henni stendur reynir kunnur ógæfumaður ítrekað að ná sambandi við lögregluna með afar óljóst erindi.
Arnaldur hefur um árabil verið langvinsælasti höfundur landsins. Bækur Arnaldar hafa verið þýddar á tugi tungumála, fengið frábærar viðtökur erlendis líkt og heima og víða komist á metsölulista. Jafnframt hefur hann hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, þar á meðal ein virtustu glæpasagnaverðlaun heims, breska Gullrýtinginn.
„Þúsundir lesenda munu leita í þessa sögu: Arnaldur stendur vel fyrir sínu…Meitluð og þaulhugsuð saga með nýjan og forvitnilegan sjónarhól Sigurðar Óla.“
Páll Baldvin Baldvinsson/ Fréttablaðið
****
„Arnaldur stendur fremstur íslenskra spennusagnahöfunda og verður að segja eins og er að enginn kemst með tærnar þar sem hann hefur hælana.“
Árni Matthíasson/ Morgunblaðið