Mynd byggð á metsölubókinni Svo fögur bein eftir Alice Sebold verður frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum þann 19. mars nk. Sagan af unglingsstúlkunni Susie Salmon hefur þegar hreyft við lesendum um allan heim og nú lifnar hún við í bíósölum. Leikstjóri myndarinnar er Nýsjálendingurinn Peter Jackson sem þegar er heimsþekktur fyrir aðlögun sína á Hringadróttinssögu. Margir bíða spenntir eftir því að sjá hvernig hann opnar áhorfendum sýn í sjálft himnaríki þar sem Susie dvelur. Bókin er nú fáanleg í kilju.