Þrír ungir menn. Þrjár ungar konur. Þrír ólíkir heimar: Reykjavík, frönsku Alparnir og yfirgefinn borpallur í eyðimörk. Alls staðar ríkir örvænting, ærandi þögn og djúp einsemd sem leiðir til furðulegra atburða og óhæfuverka.
Í þremur grípandi sögum kannar rithöfundurinn Steinar Bragi mörk mennsku og ómennsku og samband veruleika og óra af sama næmi og í skáldsögunni Konum sem hlaut fádæma góðar viðtökur, þar á meðal þrjá fimm stjörnu dóma í dagblöðum landsins. Himinninn yfir Þingvöllum er sjötta skáldsaga Steinars Braga en margir hafa beðið hennar með eftirvæntingu.
Útgáfurétturinn á skáldsögunni Konur hefur nýverið verið seldur til Svíþjóðar og Þýskalands en bókin er þegar komin út í Frakklandi.
Um Himinninn yfir Þingvöllum:
„Að hætti hinna gömlu meistara furðusögunnar
fylgir Steinar Bragi lesendum sínum um myrkustu
slóðir tilverunnar, jafnt þær sem liggja utan manneskjunnar
sem innan hennar. Þær götur þekkir hann eins og lófana á sér,
þar er hann frábær leiðsögumaður …“
Sjón
„Það er eitthvað óhugnanlega ferskt við þessar sögur.
Ófyrirsjáanleg og svimandi lesning um samskipti og sálarlíf
… Hættið að lesa blogg og lesi