Steinunn

Svíar forvitnir um Tyrkjaránið

Steinunn Jóhannesdóttir, höfundur Reisubókar Guðríðar Símonardóttur, er nýkomin heim úr fyrirlestrarferð til Svíþjóðar þar sem hún kynnti bækur sínar og  ríkulegar heimildir um ósköpin sem dundu yfir Vestmannaeyjar, Austfirði og Grindavík þegar sjóræningar frá Algeirsborg herjuðu þar og höfðu á brott með sér tæplega 400 Íslendinga. Fyrirlestrarnir fóru fram í Kungälv, Huskvarna og í Stokkhólmi, alls staðar fyrir fullu húsi forvitinna áheyrenda. Á sama tíma og augu Svía beinast að Norður-Afríku vegna ástandsins í Libýu kom þeim mjög á óvart að heyra með hvaða hætti saga Íslands og Alsír tengjast frá Tyrkjaráninu 1627.

INNskráning

Nýskráning