Thor Vilhjálmsson

Sveigur rómaður á Ítalíu

Nýverið kom skáldsagan Sveigur eftir Thor Vilhjálmsson út hjá Iperborea á Ítalíu en áður hafa tvær aðrar skáldsögur Thors komið út hjá forlaginu, Grámosinn glóir og Morgunþula í stráum. Viðtökur við Sveig hafa verið afar lofsamlegar enda Thor virtur mjög þar í landi og hefur notið mikilla vinsælda.

Dagblaðið Liberta segir Thor “stórbrotinn höfund, hvort heldur hann færir okkur miðaldasögur undir nýjum formerkjum eða beinir sjónum sínum að lykiltíma í sögu Íslands, aldamótunum 1900 og sjálfstæðisbaráttu Íslendinga.“

Í sama streng tekur menningarblað La Stampa sem segir Thor vera „Mikilfenglegt skáld… sem missti aldrei sjónar á tengingu við menningu lands síns … Margslunginn höfundur sem hneigðist af bókmenntalegri forvitni til óhefðbundnari stílbragða..”  

Il riformista segir um bók Thors “Með þeim síkvika stíl sem einkennir Thor Vilhjálmsson, blöndu af raunsæi, skáldskap og hugleiðingum um siðfræðileg og heimspekileg efni, fjallar hann um heim þar sem samúð er gjarna túlkuð sem veikleiki, ofbeldi sem vald og efasemdir eru fleiri en vissa og náttúran eini óbreytanlegi mátturinn.”

Þess má geta að 2. mars síðastliðinn var ár liðið frá andláti Thors Vilhjálmssonar.

INNskráning

Nýskráning