Þann 12. apríl síðastliðinn voru liðin 230 ár frá fæðingu Hans Jónatans, fyrsta þeldökka mannsins sem vitað er að hafi sest að á Íslandi. Hans Jónatan ólst upp sem þræll á plantekru á St. Croix í Karíbahafi en settist að á Djúpavogi árið 1805 og bjó þar til dauðadags 1827.
Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, vinnur nú að ritun ævisögu Hans Jónatans sem væntanleg er hjá Forlaginu í haust.
Gísli sagði frá mögnuðu lífshlaupi Hans Jónatans í Morgunútvarpinu hjá Bergsteini Sigurðssyni á RÚV. Til stendur að minnast hans á margvíslegan hátt í tilefni af 230 ára afmælinu, með heimildarmynd, ævisögu og sýningu sem ber yfirskriftina Svartur í Sumarhúsum. Gísli segir heimamenn á Djúpavogi hafa tekið Hans Jónatan vel og ekkert bendi til að hann hafi orðið fyrir fordómum. Aðra sögu sé að segja af afkomendum hans en Gísli telur líklegt að viðhorf til þeldökkra hafi breyst með þjóðernishyggju 19. og 20. aldar.