Stefán Máni

Svartur á leik rýkur út

Kiljuútgáfan af bók Stefáns Mána, Svartur á leik, hefur rokið út síðustu vikurnar. Nú þegar er önnur prentun á bókinni komin í hús og því búið að fylla allar hillur í verslunum að nýju.

Vinsældir bókarinnar tengjast sjálfsagt kvikmyndinni sem sýnd er nú fyrir fullu húsi í bíóhúsum landsins. Bíógestir virðast hæstánægðir með kvikmyndina en heyrst hefur að bókin sé enn betri! Lögreglustjóri Höfuðborgarsvæðisins, Stefán Eiríksson, hafði t.d. orð á því í Kastljósviðtali um daginn sem fjallaði um undirheima Íslands.


INNskráning

Nýskráning