Nýlega var skáldsagan Svartur á leik eftir Stefán Mána endurútgefin í kilju. Bókin hefur verið ófáanleg í þónokkurn tíma og þar sem kvikmynd byggð á bókinni verður frumsýnd 1. mars þótti vel við hæfi að gefa aðdáendum Stefáns Mána tækifæri til að lesa bókina áður en skundað er í bíóhúsin.
Svartur á leik kom fyrst út árið 2004 og er óhætt að segja að bókin hafi komið Stefáni Mána á kortið sem krimmahöfundi. Bókin fékk gífurlega góða dóma og var talað um að hún markaði tímamót í íslenskri skáldsagnaritun vegna þeirrar raunsæju myndar sem gefin var af íslenskum undirheimum. Með mögnuðum spennusögum sínum hefur Stefán Máni öðlast stóran aðdáendahóp og hefur skáldsögum hans verið líkt við handrit Tarantinos, „hæfilega blóðug og hæfilega fyndin. En umfram allt töff.“ (Úlfhildur Dagsdóttir / bokmenntir.is) Það verður því spennandi að sjá hvernig spennan færist yfir á hvíta tjaldið þann 1. mars.