Á næstunni verður 13. útgáfa ljóðabókarinnar Svartar fjaðrir eftir Davíð Stefánsson gefin út. Svartar fjaðrir er fyrsta bók stórskáldsins frá Fagraskógi en áður hafði Davíð birt ljóð í tímaritum. Bókarinnar var beðið með óþreyju og olli ekki vonbrigðum þegar hún kom út árið 1919. Ljóð Davíðs fjalla á opinskáan og ástríðufullan hátt um frelsi tilfinninganna – nokkuð sem ungmenni landsins voru að upplifa í fyrsta skipti.