Borgarbókasafnið efnir til sumarlesturs-átaks fyrir börn á öllum aldri í sumar. Allir krakkar geta verið með, en þátttakan felst einfaldlega í því að koma í eitthvert af sex söfnum Borgarbókasafns þegar bók af eigin vali hefur verið lesin og bæta völu í veginn þar með nafni lesandans.
Vikulega í allt sumar verður nafn eins þátttakanda dregið út og fær hann bók að gjöf frá Forlaginu. Einnig hlýtur hann nafnbótina „bókaormur vikunnar“ og fær mynd af sér í barnablaði Fréttablaðsins.
Lestur býður svo sannarlega upp á skínandi skemmtilegt hugarflug í allt sumar og það er til mikils að vinna að vera með í sumarlestri Borgarbókasafnsins.