Fjögur íslensk bókaforlög, í samvinnu við bókaverslanir Eymundsson, hafa afhent Slysavarnafélaginu Landsbjörg 1.500.000.- kr en það er afrakstur söfnunar þeirra „Bókaþjóðin styður fólkið á Haiti“. Mun styrkurinn verða nýttur til að endurnýja hluta búnaðar Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar sem skilinn var eftir á Haiti eftir að störfum hennar lauk þar. Nú er unnið hörðum höndum við að koma sveitinni aftur í útkallshæft form.
Peningunum var safnað með sölu sjö nýrra stórvirkja á sviði útgáfu og voru þau seld í bókaverslunum Eymundsson um allt land. Útgáfufélögin eru Forlagið, Bjartur & Veröld, Opna og Uppheimar auk þess sem Eymundsson bætti 10% af allri sölu barnabóka þá daga sem átakið stóð yfir við söfnunarupphæðina.
Stórvirkin sem um ræðir voru Sagan og Ísland í aldanna rás 1700–1799 frá Forlaginu, Ásgerður Búadóttir – Veftir og Elías B. Halldórsson frá Uppheimum, Myndlist í þrjátíu þúsund ár og Jöklar á Íslandi frá Opnu og Svavar Guðnason frá Bjarti & Veröld en tvö síðast nefndu verkin eru tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sem veitt verða nú í febrúar.
Félag íslenskra bókaútgefenda hyggst standa fyrir fleiri verkefnum af þessu tagi á næstu vikum til stuðnings björgunarstarfi á Haítí. Félagið hefur enn fremur vakið athygli Evrópusamtaka bókaútgefenda á þessu framtaki og hvatt systurfélög sín til að leggja þessu brýna málefni lið.
Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa bókaforlaganna, Eymundsson og Slysavarnafélagsins Landsbjargar og var hún tekin þegar styrkurinn var afhentur félaginu.