Konfekt

Stútfull konfektskál

Á miðvikudaginn 28. nóvember verður síðasta Bókakonfektkvöld Forlagsins á Café Rosenberg. Dagskráin er stórskemmtileg, fjölbreytt og ætti því að höfða til allra bókaunnenda.

Að venju fá fyrstu hundrað gestirnir frían drykk á barnum, konfekt verður á borðum og höfundar Forlagsins kynna bækur sínar.

Dagskrá kvöldsins hefst kl. 20 og er eftirfarandi:

Álfrún Gunnlaugsdóttir – Siglingin um síkin
Eiríkur Örn Norðdahl – Illska
Hugleikur – Opinberun
Einar Már – Íslenskir kóngar
Gerður Kristný – Strandir

-hlé-

Pétur Gunnarsson – Íslendingablokk
Hildur Knútsdóttir – Spádómurinn
Kristín Steinsdóttir – Bjarna-Dísa
Megas – Textar 1966-2011

Verið velkomin!

INNskráning

Nýskráning