Auður Jónsdóttir

Stúlka verður rithöfundur

Vera Knútsdóttir skrifar langa og ítarlega umsögn um bók Auðar Jónsdóttur, Ósjálfrátt, á vef Borgarbókasafnsins, bokmenntir.is, í dag. Hún rekur ólíka þræði bókarinnar, bendir á að þetta sé „fjölskyldusaga sem segir sögu kvenleggsins í fjölskyldu aðalpersónunnar Eyju“, einnig sé alkahólismi mikilvægt viðfangsefni og loks megi lýsa verkinu sem „samfélagslegri og raunsærri tímabilssögu þar sem fram koma áhrifamiklir atburðir í íslensku samfélagi; annars vegar snjóflóðin á Vestfjörðum hina snjóþungu vetur 1995 og síðar kreppuástand í þjóðfélaginu haustið 2008. … En umfram allt er Ósjálfrátt þroskasaga rithöfundar og lýsir á áhrifamikinn hátt hvernig Eyja, sem í upphafi sögunnar er eilítið afvegaleidd og týnd unglingsstúlka, verður að rithöfundi, konu og móður.“

Vera lítur ásamband Eyju við móður sína sem þungamiðju þroskasögunnar. „Eins og öllum börnum þykir Eyju ákaflega vænt um móður sína og sú væntumþykja skilar sér bersýnilega í textanum þegar Eyja lýsir góðum hliðum móður sinnar af hlýju og næmni. En hún dregur heldur ekkert undan þegar hún skrifar um drykkjusýki hennar og hvernig hún umturnast í erfiða og hreint út sagt ógeðfellda persónu þegar hún drekkur. Sú lýsing er í ætt við aðrar hispurslausar lýsingar á því fólki sem stendur Eyju næst en ætla má að skáldskaparleg fjarlægðin og samhengið færi henni ákveðna leið til að takast á við þessa erfiðleika. Kannski ekki til að gera þá upp, heldur frekar til að sýna fram á hvernig þeir eru hluti af lífinu og henni sjálfri – þeirri sem hún er í dag. En þó að lýsingarnar geti orðið ljótar eru þær aldrei niðrandi og þó að karakterarnir séu erfiðir verða þeir aldrei að öllu leyti óviðkunnanlegir; þeir eru einfaldlega mannlegar og breyskar persónur sem hafa sína kosti og galla. Þessi meðferð raunverulegra persóna í skáldskapartexta er örugglega vandmeðfarin en Auði tekst það afar vel, enda ein af ástæðunum að hún gerðist rithöfundur; til að reyna að skilja sína nánustu, umhverfi sitt og kannski um leið sjálfa sig?“ En Ósjálfrátt er ekki eintóm alvara, sagan er líka full „af stórskemmtilegum lýsingum og bráðfyndnum senum“, segir Vera. „Þá hefur sagan einnig að geyma ógleymanlegar og einstaklega fallegar og hlýjar senur. Til dæmis þegar Eyja lýsir fæðingarþunglyndinu sem hrjáði ömmu hennar, móður og loks hana sjálfa.“ Vera bendir líka á hvernig Auður dregur fram áhrif kvennanna í ættinni á skrif Eyju og finnst það athyglisvert í ljósi þess að Auður á þennan mikla „bókmenntaafa“!

Að lokum segir Vera: „Áður en ég lýk þessum pistli má ég til með að nefna snjóflóðin fyrir vestan sem verða viðfangsefni Auðar í þessari bók og afar mikilvægur þáttur í lífi Eyju. Þrátt fyrir að ég hafi aðeins verið barn þegar flóðin féllu er minningin um þau ljóslifandi og sárt að rifja upp. Sárt en samt sem áður nauðsynlegt til að minnast þeirra sem létust og einnig allra þeirra sem búið hafa í þessu landi og lifað slíkar hörmungar. Í ljósi þess er einkennilegt að ekki sé oftar minnst á þau, að rithöfundar, listamenn og aðrir velti þeim ekki oftar fyrir sér. Hér er ég ekki að hvetja til þess að fólk í skapandi störfum velti sér upp úr harmrænni reynslu annarra. Aftur á móti held ég að skráning slíkra atburða í listrænu samhengi sporni hugsanlega gegn því að þeir, og það „tráma“ sem þeim fylgdi, falli í gleymsku.”

INNskráning

Nýskráning