Stúlka veltir galdrastrák úr sessi

Þau tíðindi berast nú frá Bretlandseyjum að bækurnar um Tracy Beaker eftir metsöluhöfundinn Jacqueline Wilson hafi velt Harry Potter bókunum úr sessi sem vinsælustu bækurnar á þarlendum bókasöfnum. Samkvæmt vefsíðunni Bookseller.com trónir Wilson á toppnum yfir „mest lánuðu“ höfundana með ekki færri en 16 milljón útlán. Næst á eftir henni kemur sjálf Danielle Steel með 14 milljón útlán.

Átta bækur Wilson hafa komið út á íslensku á liðnum árum og notið feikimikilla vinsælda hjá yngri lesendum. Síðasta bók Wilson, Tracy Beaker í aðalhlutverki, kom út árið 2008 en von er á nýrri og spennandi bók með haustinu!

INNskráning

Nýskráning