Þetta magnþrungna stórvirki Páls Baldvins Baldvinssonar seldist algjörlega upp fyrir jólin og því var brugðið á það ráð að búa til gjafabréf sem hægt væri að skipta út fyrir bók þegar 2. prentun kæmi. Nú er sú stund runnin upp og við hvetjum þá sem eiga gjafabréf að drífa sig út í næstu bókaverslun og fá eintak af Stríðsárunum. Þeir sem ekki eiga gjafabréf geta auðvitað fengið bók líka því nú er nóg til.
Vinsældum Stríðsáranna virðist ekki ætla að linna á næstunni en bókin situr nú í efsta sæti metsölulista Eymundsson.
Í henni er Ísland fært inn á landakort heimsstyrjaldarinnar síðari og sýnt hvernig það varð órofa hluti af hildarleiknum sem fram fór um víða veröld – og ekki síst á hafinu kringum landið. Grimmd, lífsþorsti, hetjudáðir og hryllingur stríðsátakanna er dreginn fram í fjölda frásagna, fréttaskeyta, leyniskjala, dagbóka og minningabrota, auk þess sem verkið geymir aragrúa ljósmynda, innlendra og erlendra, sem margar koma nú í fyrsta sinn fyrir almenningssjónir.
Páll Baldvin Baldvinsson, bókmenntafræðingur og menningarrýnir, hefur um árabil haft brennandi áhuga á þessu einstæða tímabili í sögu þjóðarinnar. Verkið er afrakstur gríðarlega umfangsmikillar vinnu hans við söfnun ljósmynda, endurminninga og annarra heimilda um stríðsárin.