Hagþenkir

Stríðsárin hljóta viðurkenningu Hagþenkis

Á fimmtudaginn hlaut Páll Baldvin Baldvinsson Viðurkenningu Hagþenkis 2015 fyrir Stríðsárin 1938–1945.

Í ályktunarorðum Viðurkenningarráðsins segir: „Í þessu umfangsmikla verki er dregin upp fjölbreytt og áhrifarík mynd af ljósum og dökkum hliðum stríðsáranna, samfélagslegum átökum og örlögum einstaklinga.“

Formaður Hagþenkis Jón Yngvi Jóhannsson, veitti viðurkenninguna fyrir hönd félagsins og Kristín Svava Tómasdóttir flutti greinargerð Viðurkenningarráðs sem auk hennar skipuðu Baldur Sigurðsson málfræðingur, Kristinn Haukur Skarphéðinsson náttúrufræðingur, Þorbjörn Broddason félagsfræðingur og Þórunn Blöndal íslenskufræðingur. Verkefnastýra ráðsins er Friðbjörg Ingimarsdóttir framkvæmdastýra Hagþenkis.

Páll Baldvin var að vonum afar þakklátur í ræðu sinni og sagði meðal annars: „Íslenskt fræðasamfélag leggur á okkar dögum fram mikla og oft vanmetna vinnu við rannsóknir og útgáfu fræðirita. Í skjóli menntastofnana er partur af því starfi launaður, en í mörgum tilvikum er sá starfi unninn fyrir lítinn sem engan ábata annan en ánægjuna og svölun forvitni, sköpun í gagnasöfnun, rannsókn sem leiðir til niðurstöðu. Í mörgum tilvikum til útgáfu af einhverju tagi.“

Við óskum Páli Balvini nnilega til hamingju með heiðurinn.

INNskráning

Nýskráning