Höfundarnir Steinar Bragi, Eiríkur Örn Norðdahl og Kristín Eiríksdóttir munu kæta geð Graz-verja í Austurríki í kvöld ásamt hinni fjölhæfu tónlistarkonu Ólöfu Arnalds. Þar í borg stendur yfir menningarhátíð bókmenntatímaritsins Lichtungen, sem er eitt þekktasta tímarit sinnar tegundar þar um slóðir. Tímaritið fagnar 30 ára afmæli sínu um þessar mundir.
Nýjasta hefti tímaritsins er helgað íslenskum bókmenntum en þar má finna brot úr verkum eftir Steinar Braga, Eirík Örn, Kristínu Eiríksdóttur, Þórdísi Björnsdóttur, Ingólf Gíslason, Kristínu Ómarsdóttur og Sjón.