Kort af Fiskislóð

Stórglæsileg kortadeild á Fiskislóð 39

Við höfum opnað nýja og stórglæsilega kortadeild í verslun okkar að Fiskislóð 39 þar sem finna má frábært úrval landakorta og ferðabóka. Við hvetjum ferðlanga til að líta við og græja sig upp fyrir sumarið – enda er gott kort jafn mikilvægt og gott veður þegar ferðast er innanlands.

Á dögunum bættist við nýr kortaflokkur í annars fjölbreytta flóru okkar en Atlaskortin eru án efa einn viðamesti flokkur korta af Íslandi sem nokkru sinni hefur komið fyrir almenningssjónir.

Við minnum á að landakortin okkar eru fáanleg bæði brotin og flöt.

Verslunin er opin alla virka daga milli kl. 10-17.

INNskráning

Nýskráning