Sofi Oksanen

Stöngin inn hjá Oksanen

Nú er lýðum ljóst að finnsk-eistneski spútnikhöfundurinn Sofi Oksanen er handhafi hinna frönsku FNAC bókmenntaverðlauna fyrir skáldsögu sína Hreinsun. Verðlaun þessi eru enn ein skrautfjöður í hatt Oksanen sem hefur hreinlega sópað til sín viðurkenningum á árinu. Þess má einnig geta að innan við viku eftir útkomu bókarinnar í Frans var þegar búið að panta tæplega fjörtíu þúsund eintök af Hreinsun hjá útgefandanum – sem skiljanlega er í skýjunum. Hreinsun kemur út hjá Forlaginu í haust.

INNskráning

Nýskráning