Fjallað er um fjölmargar barnabækur Forlagsins í Fréttatímanum í morgun og augljóst að gagnrýnandinn hefur skemmt sér við lestur þeirra. Um fimm stjörnu bókina Dagbók Ólafíu Arndísar eftir Kristjönu Friðbjörnsdóttur segir Páll Baldvin Baldvinsson: „Þetta er skemmtilestur, sögukonan er dekruð og djörf, feimin og frek … Fínt lesefni fyrir stráka og stelpur frá 7 til 12.“
Flugan sem stöðvaði stríðið fær 4 stjörnur og umsögnina: „Skemmtileg og hugmyndarík saga með óvenjulegu sjónarhorni …“
Náttúrugripasafn Sigrúnar Eldjárn kallar Páll „skemmtisögu fyrir krakka“ með vel undirbyggðri spennu, sem hún sannarlega er, og prýðir hana svo þremur stjörnum.
Um Ríólítreglu Kristínar Helgu Gunnarsdóttur segir Páll Baldvin: „Ríólít-reglan er spennandi og fjörleg saga … Hér er unnið með álfaminnið á snjallan hátt … Samtöl lipur, persónur skýrar og allt leiðir í æsispenning.“ Fjórar stjörnur fær þessi bók og sömuleiðis sú næsta: Upp á líf og dauða eftir Jónínu Leósdóttur. Um hana segir: „Sagan er skemmtileg, keyrð áfram af samtölum sem draga fram ólíka persónuleika í hópnum, ólíkar skoðanir … Sagan er prýðilega hugsuð og vel sett saman, verður hvergi klisjukennd.“
Það er því ljóst að börnum og unglingum – og fjölskyldunni allri – býðst nóg af skemmtilegu lesefni fyrir jólin og til framtíðar.