Með DV í dag fylgir bókakálfur sem bragð er að. Þar fjallar Ingi Freyr Vilhjálmsson um Ástarsögu Íslendinga að fornu eftir Gunnar Karlsson, gefur henni fjórar stjörnur og segir að ljóst sé að Gunnar unni efninu og skrifi um það af þeirri ást sem við á. Halldór Armand Ásgeirsson fær líka fjórar stjörnur hjá Ingólfi Sigurðssyni fyrir bók sína Vince Vaughn í skýjunum. Þar skrifar bókmenntamaður af yngri kynslóð sem skilur alveg hvað Halldór er að fara með bók sinni og við hverja hann er að tala: „Það er aðdáunarvert að upprennandi höfundur brjóti upp formið og takist á við jafn áhugavert viðfangsefni og tæknivæddan nútímann,“ segir hann. Ingólfur dáist líka að stíl Halldórs: „Hvernig hann tengir setningarnar saman … er listilega vel gert og myndmálið kallar fram trúverðuga og skemmtilega atburðarás.“
Einnig skrifar Kristjana Guðbrandsdóttir um nýja bók Steinars Braga, Reimleika í Reykjavík, undir titilinum „Dauðinn við næsta fótmál – poppuð alþýðuafþreying“ og loks segir Reynir Traustason að leyndarmál Jóhönnu séu afhjúpuð í bók Jónínu Leósdóttur, Við Jóhanna. Þær tvær fá þrjár stjörnur hvor.