Dr. Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur ræðir um lífshlaup Gunnars Thoroddsen á Súfistanum, Laugavegi 18 í kvöld, þriðjudaginn 15. febrúar kl. 20. Súfistaspjallið að þessu sinni ber yfirskriftina „Stjórnskipun lýðveldisins Íslands“. Bók Guðna um Gunnar Thoroddsen var meðal vinsælustu ævisagna fyrir síðustu jól og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Súfistaspjallið er öllum opið.