Ófeigur Sigurðsson hlaut mikið lof gagnrýnenda og Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins fyrir Skáldsögu um Jón (2010) þar sem hann varpaði nýju ljósi á 18. öldina gegnum augu Jóns Steingrímssonar eldklerks. Í Landvættum kannar hann af sama næmi líf og kjör í klofnu þjóðfélagi við lok 20. aldar.
Samkvæmt gagnrýnendum er stíll Ófeigs til fyrirmyndar í bókinni, bæði fyndinn og einstakur. Í Fréttablaðinu var sagt að hrein unun væri að lesa textann og tekið var undir það í Kiljunni og þá sérstaklega í köflunum sem gerast í kjötvinnslu á Kjalarnesinu.
Gunnar Már Gunnarsson á vikublaðinu Akureyri var afar hrifinn af bókinni og segir m.a. í dómi sínum: „Þessi saga er ákaflega metnaðarfull og meiri en aðeins vísir að íslenskri menningarsögu; hún er heilt lyng, nærri því svart, af þeirri menningarsögu sem við þurfum á að halda í dag. … Lystisemdir textans, fyrir utan stílgáfu höfundarins sem eiginlega er óumdeilanleg þó hún skeiði æði lausbeisluð, felast í möguleikum lesandans til að rekja upp þræði bókarinnar og rannsaka þannig sjálfur eigin nútíma.“