Í nýrri föndurbók eftir Sigrúnu Eldjárn er að finna dásamlega jólakrakka sem heita í höfuðið á jólasveinunum þrettán.
Hægt er að klippa út og leika sér með jólakrakkana og hér á myndinni má sjá Stekkjastaur og Stekkjastöng í tilefni þess að Stekkjastaur kom til byggða í dag.
Jólakrökkunum fylgja sniðug föt og þeir sem vilja geta teiknað handa þeim enn fleiri flíkur.
Frábær bók til að láta tímann líða aðeins hraðar síðustu dagana fyrir jól!