Næstkomandi laugardag, 5. nóvember, gengst Gerðuberg fyrir ritþingi um Vigdísi Grímsdóttur og verk hennar og hefst það kl. 13.30. Jórunn Sigurðardóttir mun leiða þingið en spyrlar verða Hrafn Jökulsson og Þóra Sigríður Ingólfsdóttir. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Á ritþingum, sem haldin hafa verið reglulega í Gerðubergi frá árinu 1999, er leitast við að veita persónulega innsýn í líf og feril íslenskra rithöfunda. Eru allir aðdáendur Vigdísar því hvattir til að mæta og raunar allir þeir sem vilja kynnast verkum hennar betur og komast nær höfundinum á bak við þau.
Vigdís Grímsdóttir kvaddi sér hljóðs fyrir hartnær þremur áratugum með smásagnasafninu Tíu myndir úr lífi þínu og hún sló rækilega í gegn þegar fyrsta skáldsaga hennar, Kaldaljós, kom út árið 1987. Síðan hefur hún verið meðal okkar allra fremstu höfunda og sent frá sér skáldsögur, ljóð, barnabækur og æviminningar. Nýjasta bók Vigdísar, Trúir þú á töfra, er nýlega komin út og hefur hlotið glimrandi viðtökur.
Nánar má lesa um ritþingið á vef Gerðubergs.