Stefán Máni sækir fram í Frakklandi

Skáldsaga Stefáns Mána, Svartur á leik, kemur út í Frakklandi innan tíðar. Frakkar voru þeir fyrstu til að kveikja á útgáfu þeirrar bókar á erlendri grund en hún mun koma út hjá forleggjaranum Gallimard sem einnig hefur gefið út Skipið eftir sama höfund. Skipið hefur fengið frábærar viðtökur og glæsilega dóma en til stendur að prenta annað upplag af henni innan skamms. Stefán Máni er afar kátur með viðbrögðin en hann er nýkominn heim af bókmenntahátíð í Frakklandi og hefur þegar fengið óskir um að mæta á fleiri slíkar í næsta mánuði.

Það spillir heldur ekki að von er á kvikmynd byggðri á bókinni Svartur á leik, leikstjóri hennar verður Óskar Þór Axelsson en framleiðendur eru m.a. hinn danskættaða Nicolas Winding Refn (leikstjóri Pusher, Valhalla Rising) og Chris Briggs (framleiðandi Hostel myndanna).

INNskráning

Nýskráning