Húsið eftir Stefán Mána fékk Blóðdropa Hins íslenska glæpafélags sem besta íslenska glæpasaga ársins 2012! Við óskum höfundi innilega til hamingju með verðlaunin. Máni hefur áður hlotið verðlaunin, árið 2007 fyrir bókina Skipið.
Blóðdropinn var afhentur á aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkurvið Tryggvagötu í gær. Í dómnefnd sátu Auður Aðalsteinsdóttir, Inga Magnea Skúladóttir og Rósa Björk Gunnarsdóttir. Í umsögn þeirra segir að Húsið sé: „vel fléttuð, hröð, spennandi og óhugguleg glæpasaga“. Höfundur sé í essinu sínu og „sá sem opnar Húsið læsist inni þar til sögunni lýkur“.
Húsið verður framlag Íslands til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins árið 2014. Við spáum því að Stefán Máni rúlli þeim upp líka.