Sofi Oksanen áritar í Norræna húsinu

Stappfullt í Norræna húsinu

Færri komust að en vildu á höfundakvöldi í Norræna húsinu í gærkvöldi þar sem finnsk-eistneska skáldkonan Sofi Oksanen sat fyrir svörum. Setið var upp um alla veggi og var það mál manna að annar eins fjöldi hefði vart sést í húsinu frá því David Attenborough stappfyllti það um árið. Gerður var góður rómur að dagskrá kvöldsins sem Oksanen hóf með því að lesa úr frumtexta bókar sinnar Hreinsun. Að því loknu leiklásu leikarar frá Þjóðleikhúsinu stuttan kafla úr bókinni. Silja Aðalsteinsdóttir, útgáfustjóri Máls og menningar, ræddi síðan við höfundinn og spurði vítt og breitt um tilurð sögunnar og framtíðarplön þessa forvitnilega höfundar. Dagskránni lauk síðan með upplestri Sigurðar Karlssonar þýðanda bókarinnar.

Við minnum á að Sofi mun árita bækur sínar og spjalla við lesendur í bókaverslun Eymundsson við Skólavörðustíg kl. 17 í dag.

INNskráning

Nýskráning