Við vekjum athygli á höfundaspjalli í Norræna húsinu á sunnudaginn. Þar ræðir Ólafur Guðsteinn Kristjánsson við rithöfundinn og þýðandann Kristof Magnusson sem er gestur Bókmenntahátíðar í Reykjavík um þessar mundir.
Kristof er fjölhæfur maður mjög, hann er af íslenskum ættum og hefur meðal annars þýtt Grettissögu, Storm eftir Einar Kárason og bók Hallgríms Helgasonar 10 ráð … yfir á þýsku. Næsta haust mun Mál og menning gefa út skáldsögu hans Das war ich nicht en hún er að sögn alveg dillandi skemmtileg ástar- og gamansaga.
Ólafur Guðsteinn mun ræða við Kristof um sýn hans á Ísland og það sem íslenskt er, hvernig hann sér hluti sem við heimamenn komum ekki auga á og um þýðingastarf hans og hvernig þau hafa áhrif á hans eigin skrif.
Höfundaspjallið fer fram í Norræna húsinu á sunnudaginn og hefst kl. 13. Verið velkomin!