Spjallað við höfunda

Spjallað verður við höfunda nokkurra bóka um sögu og sagnfræði sem koma út nú fyrir jólin í Sögufélagi í Fischersundi kl. 17 næstkomandi föstudag (17/12). Meðal þeirra sem rætt verður við eru Sigrún Pálsdóttir, höfundur Þóru biskups, og Guðni Th. Jóhannesson, höfundur Gunnars Thoroddsen – ævisaga.

Í tilkynningu segir: „Saga og sagnfræði eru meðal þess heitasta í bóklegri uppskeru ársins. Á föstudaginn kemur hóar Sögufélag saman fríðum flokki höfunda til óformlegrar samkomu um nýjustu bækurnar. Hér gefst færi á að taka sagnfræðinga og höfunda nýrra sögulegra rita tali, ræða um sjónarmið þeirra og bakgrunn verkanna, nálgun þeirra og efnistök.“

Bækurnar verða til sölu og höfundar árita fyrir þá sem þess óska. Nánar á vef Sögufélags.

INNskráning

Nýskráning