Piparkökuhúsið eftir Carin Gerhardsen er spennutryllir sem fær hárin til að rísa! Höfundurinn byggir á eigin reynslu úr barnæsku og úr verður mögnuð glæpasaga.
Börn geta verið ótrúlega grimm. Og sár sem þau veita hvert öðru geta setið eftir á sálinni áratugum saman án þess að gróa. Svo gerist eitthvað sem rífur ofan af þeim og afleiðingarnar verða hörmulegar. Gömul kona sem býr ein snýr heim í hús sitt eftir langa sjúkrahúsvist. Á eldhúsgólfinu liggur lík af manni sem hún þekkir ekki en reynist vera vammlaus fjölskyldufaðir úr hverfinu. Hver hefur orðið honum að bana og hvers vegna?
Lögregluforinginn Conny Sjöberg og undirmenn hans á Hammarbystöðinni standa á gati – og svo fjölgar morðunum og tengsl koma í ljós. En hver ber þyngsta sektarbyrði – sá sem fremur verknað, sá sem hvetur til hans, sá sem rís upp til hefnda eða sá sem horfir aðgerðalaus á?
Carin Gerhardsen þekkir einelti af eigin raun og ólst upp í Katrineholm þar sem sagan hefst. Margar af senunum eru byggðar á minningum hennar úr barnæsku. Hún er stærðfræðingur og starfaði við ráðgjöf á sviði veflausna þar til hún sló rækilega í gegn með Piparkökuhúsinu. Hún hefur síðan sent frá sér fleiri vinsælar bækur um lögreglusveitina á Hammarbystöðinni og þær verið þýddar á hin ýmsu tungumál.
Í þessari grein segir Carin enn frekar frá Piparkökuhúsinu
SMELLTU HÉR TIL AÐ LESA BROT ÚT BÓKINNI
„Piparkökuhúsið … er eins og lygnt og gruggugt fljót; háskinn er rétt undir yfirborðinu og bíður þess að brjótast fram.“
The Coast
„Hér er komið inn að kviku og sýnt hvernig afbrotamaður verður til. Sagnaskemmtunin fæst í kaupbæti.“
Borås Tidning