Höfundar á Bókmenntahátíð í Reykjavík 2011

Spennandi gestir á Bókmenntahátíð í Reykjavík

Við hvetjum alla bókaunnendur til þess að kynna sér dagskrá Bókmenntahátíðar í Reykjavík sem hefst nk. miðvikudag. Dagskráin í ár er afar vegleg og fjöldi heiðurshöfunda, bæði íslenskra og erlendra, mun kynna verk sín fyrir fróðleiksfúsum gestum.

Við tökum okkur það bessaleyfi að tæpa á því helsta á upplestrarsviðinu! Forvitnum lesendum gefst kærkomið tækifæri á bókmenntahátíð til að kynna sér það sem er efst á baugi eða rétt handan við hornið á bókasviðinu.

Á fyrsta upplestrarkvöldinu í Iðnó, miðvikudaginn 7. sept., lesa rithöfundarnir Ragna Sigurðardóttir og Hallgrímur Helgason úr væntanlegum skáldverkum sínum. Þýski metsöluhöfundurinn Ingo Schulze les úr bók sinni Adam & Evelyn sem er nýkomin út á íslensku og landi hans Kristof Magnusson, sem er bæði virtur þýðandi og höfundur, segir frá sínu starfi. Von er á íslenskri þýðingu á bók Kristofs, Das war ich nicht, næsta haust.

Á fimmtudagskvöldið geta gestir í Iðnó meðal annars heyrt í Pétri Gunnarssyni, sem máski mun segja frá væntanlegri þýðingu sinni á stórvirki Claude Lévi-Strauss um Regnskógabeltið raunamædda, og heimshornaflakkarann fræga Vikas Swarup sem stimplaði sig svo rækilega inn í vitund lesenda með metsölubókunum Viltu vinna milljarð? og Sex grunaðir.

Föstudagskvöldið 9. september kemur Denise Epstein, dóttir hinnar virtu Iréne Némirovsky fram á upplestrarkvöldi í Iðnó ásamt fleiri góðum gestum.

Kristín Marja Baldursdóttir tekur þátt í upplestrardagskrá sem haldin verður í Norræna húsinu kl. 15.30 á laugardaginn og Eiríkur Örn Norðdahl er síðan meðal höfunda á síðasta upplestrarkvöldinu í Iðnó á sunnudagskvöldið.

Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar er að finna hér.

INNskráning

Nýskráning