Spennandi barnabækur fyrir börn á öllum aldri!

Draugagangur á Skuggaskeri

Merkin sem berast frá njósnahnettinum hafa komið honum á sporið. Ánægjuglott færist yfir andlit hans. Hann hefur nefnilega uppgötvað lítið og skrítið sker sem lúrir úti í hafi og lumar á dýrmæti sem vert er að rannsaka betur.

Strokubörnin eru fundin! En þau neita að snúa heim fyrr en fullorðna fólkið hefur lagfært allt sem eyðilagðist í stríðinu heima í Fagradal. Sumarið er framundan og Skuggasker heimsins besti staður. Eða hvað? Getur verið að hér sé eitthvað hættulegt á sveimi?

Draugagangur á Skuggaskeri er ríkulega myndskreytt saga fyrir lesendur frá níu ára aldri og framhald sögunnar Strokubörn á Skuggaskeri sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Fúsi froskagleypir

Allir eru hræddir við Fúsa froskagleypi, hættulegasta þorpara bæjarins, en ekkert er skemmtilegra en að stríða honum svolítið. Og þá getur sko komið sér vel að vera lítill!

Fúsi froskagleypir er ein vinsælasta saga danska barnabókahöfundarins Ole Lund Kirkegaards.

Þessi frábæra saga Kirkegaard kom fyrst út á íslensku árið 1973 en birtist hér í sinni fjórðu endurprentun og fyrir löngu orðin sígild.

Demantaráðgátan

Demantar hverfa á óútskýrðan hátt úr skartgripabúð Múhameðs Karat. Allt bendir til að hinn ósvífni þjófur sé einn af starfsmönnum búðarinnar; Þórir, Sif eða Raggi. Lögreglan í Víkurbæ getur ekki leyst gátuna og því leitar Múhameð til spæjaranna Lalla og Maju, ráðagóðra og snjallra bekkjarsystkina sem hefjast strax handa við að þefa uppi nýjar vísbendingar.


Martin Widmark er einn vinsælasti barnabókahöfundur Svíþjóðar og hefur selt meira en þrjár milljónir bóka á sænsku auk þess sem bækur hans hafa verið þýddar á yfir tuttugu tungumál. Sögurnar um Spæjarastofu Lalla og Maju, með skemmtilegum myndum Helenu Willis, eru margverðlaunaðar. Þær hafa verið kvikmyndaðar og settar upp bæði sem leikrit og ópera – já, ópera!


Íris Baldursdóttir þýddi.

INNskráning

Nýskráning