Hannesarholt efnir til hátíðardagskrár og söngstundar í tilefni af áttræðisafmæli Dicks Ringlers, sem þýtt hefur ljóð Jónasar Hallgrímssonar á ensku, sunnudaginn 26. janúar kl. 16.
Árið 2010 gaf Forlagið út bók Ringlers, The Bard of Iceland, þar sem hann rekur sögu Jónasar, kynnir landshætti hér og í Danmörku og tengir skáldið við strauma og stefnur síns tíma, m.a. við skáldskap samtímamanna hans í Evrópu, og birtir jafnframt þýðingar sínar á lykilverkum hans með ítarlegum skýringum. Þetta brautryðjendaverk um Jónas er líklega viðamesta og markverðasta bók sem út hefur komið um íslenskt þjóðskáld á erlendu máli og um leið afar áhugavert fræðirit um ljóðaþýðingar.
Ringler þýddi Jónas vegna þess að honum fannst hann eiga erindi við heiminn eigi síður skáld á borð við Wordsworth og hefur með bók sinni stuðlað að útbreiðslu á verkum Jónasar svo um munar.
Til þess að heiðra Ringler á áttræðisafmælinu verður samsöngur í Hljóðbergi Hannesarholts og ljóð Jónasar úr The Bard of Iceland sungin bæði á íslensku og ensku. Textar munu birtast á tjaldi, til að allir geti sungið með. Margrét Pálmadóttir mun hjálpa til með forsöng og Ástvaldur Traustason mun spila með á flygilinn. Viðar Víkingsson mun kvikmynda söngstundina, og brot úr henni mun birtast á vef Hannesarholts, þar sem Dick Ringler mun geta notið hennar á heimili sínu í Madison, þegar honum hentar.