Bók Þórunnar Erlu-Valdimarsdóttur, Með sumt á hreinu, þar sem Jakob Frímann Magnússon lítur um öxl og ræðir sín hjartans mál er nú í fyrsta sæti metsölulista Bókabúðar Máls og menningar. Í bókinni sýnir Jakob Frímann sín mörgu andlit, talar um þau fjölmörgu verkefni sem hann hefur tekið sér fyrir hendur en einnig um sitt persónulega líf; fjölskylduna, ástkonurnar, gleði sína og sorgir.
Haldið var stórskemmtilegt útgáfupartý þegar bókin kom út fyrir tveimur vikum. Í tilefni dagsins var haldin eftirhermukeppni þar sem fimm landsþekktir grínarar hermdu eftir goðinu og uppskáru mikla kátínu. Allir stóðu sig svo vel að dómnefnd treysti sér ekki til þess að velja einn sigurvegara og voru því allir sæmdir heiðursorðunni „Frímanninn 2011.“