Hugleikur Dagsson kynnir tvær nýjar bækur í Bókabúð Máls og menningar föstudaginn 1. nóvember, klukkan 17.
My Pussy is Hungry heitir brandarasafn á ensku, tilvalið fyrir ferðamenn, en bækur Hugleiks hafa notið undraverðra vinsælda meðal þessa hóps. Ógæfa heitir samstarfsverkerfni Hugleiks, Ránar Flygenring og Páls Óskars Hjálmtýssonar. Þar er á ferðinni uppvakningasaga full af blóði, ælu og ást.
Boðið verður upp á vín og nammi og hin eiturhressa hljómsveit Prins Póló mun leika tónlist fyrir gesti!
Hressari viðburði er erfitt að finna. Ekki missa af þessu!