Allir vita að góðir sokkar gera kraftaverk og sannaðist það á dögunum þegar Guðrún Magnúsdóttir, höfundur bókarinnar Sokkaprjón, gaf 52 pör af glæsilegum sokkum þeim sem prýða síður bókarinnar til jólabasars Hringsins. Eins og fjöldamörg önnur börn hafa barnabörn Guðrúnar notið góðrar aðhlynningar á Barnaspítala Hringsins og vildi Guðrún með þessu þakka fyrir sig og sína. Sokkarnir voru til sölu á jólabasarnum sem haldin var á Grand Hotel s.l. sunnudag. Á myndinni má sjá Guðrúnu Magnúsdóttur afhenda formanni Hringsins, Valgerði Einarsdóttur, og Þóreyju Sveinbergsdóttur, formanni jólabasarnefndar félagsins, þessa rausnargjöf en allur ágóði af árlegum jólabasar Hringsins rennur til Barnaspítalans eins og kunnugt er.