Það verða víst víða bjartar og glaðar tær á heimilum landsmanna í vetur ef marka má undirtektir sem bók Guðrúnar Magnúsdóttur, Sokkaprjón, hefur fengið. Fyrsta upplag er á þrotum og næsta prentun á leiðinni svo það má ljóst vera að víða er verið að fitja upp á nýjum sokkum.
Í bókinni eru einfaldar og skýrar uppskriftir að alls kyns sokkum og ótal munsturbekkjum en einnig nákvæmar leiðbeiningar með ljósmyndum sem sýna hvernig sokkar eru prjónaðir, lykkju fyrir lykkju.