Sögusteinninn 2011, barnabókaverðlaun IBBY, verða afhent í fjórða sinn á morgun – á Degi barnabókarinnar. Frú Vigdís Finnbogadóttir afhendir verðlaunin við hátíðlega athöfn í Grófarhúsinu við Tryggvagötu kl. 16.30, laugardaginn 2. apríl. Boðið verður upp á léttar veitingar, allir velkomnir.